Ađalvalmynd

Tenglar

Auglýsing

bloggsíđur

Nýtt bloggSingar

Þetta bloggar.is er alltaf bilað ég er kominn með nýja síðu, http://singer.blog.is

Ţjóđfélagsrýnirinn!Singar

Þá eru vel flest prófkjör búinn, eftir að hafa séð úrslit prófkjöranna, þá verð ég að segja að ég er ekki bjartsýnn, fyrir hönd Samfylkingarinnar og þá sérstaklega ekki í Reykjavík. Ég var ekkert hoppandi glaður eftir prófkjör Sjálfstæðismanna og hélt ég að þeir mundu nú ekki ríða feitum hesti í Reykjavík en eftir að hafa séð úrslitin í prófkjöri Samfylkingarinnar þá held ég að Sjálfstæðismenn muni vinna öruggan sigur í Reykjavík.
Endurnýjuninn hjá Samfylkingunni er enginn, hvað er Jóhann Sigurðardóttir að gera ennþá á þingi? Hún hefur verið að mygla þarna í nokkur ár og árangurinn uppá síðkastið er enginn, þegar svo er, þá held ég að það sé kominn tími á nýtt blóð. Ég held að stjórnin muni halda velli. En hvað veit ég? - Ekkert!
Ég ætla ekki að skrifa neitt um Frjálslynda (íhaldsmenn) ég vil þó segja eitt að þeir verða að fara skipta um nafn, hentar ekki  að heita Frjálslyndiflokkurinn þegar þeir standa fyrir allt annað. Þetta er villandi.
Ég var að lesa og hlusta á hvað ástandið í Dafur, sé að fara versnandi, kemur ekki á óvart, enda er alþjóðasamfélagið ekkert að aðhafast, nema kannski að senda einhverja matarbakka. Ég held að það þurfi bara að stoppa þessar þjóðernishreinsanir, en hverjum er ekki sama? Þetta eru bara einhverjir Afríkunegrar, kannski að það verði gerð ágætiskvikmynd um þetta eftir tíu ár? Hotel Rwanda var fín, þessi yrði samt meira sveitó, hlaupandi negrar úr einhverjum kofum og ríkisherinn að elta, svoltið langdregin, enda yrði að sýna hvað flóttamennirnir eru að gera í dag... svelta! Tekur kannski of langan tíma að sýna fólk svelta? Ríkisstjórnin í Súdan hefur auðvitað leyfi fyrir þessum aðgerðum sínum, svo lengi sem þeir gefa okkur upplýsingar um einhverja hryðjuverka-menn.... 2500 manns deyjandi á 5 ára fresti á vesturlöndum eða milljónir manna í Dafur héraði í Súdan!?
Þessi spurning á rétt á sér, hver er þín skoðun?
Er okkur ekki skítsama hvað gerist langt í burtu?, svo lengi sem við vitum ekki af því!
Ég var rændur í gær, það var farið inní bílinn minn og stolið geisladiskum, diskum með Gorillaz, Bob Dylan, Frank Zappa, The Doors, The Beatles, Pink Floyd og Pétri Ben! - Seljahverfi, stútt fullt af hyski!

Kjallarinn!Singar

Áfram með þetta!

Fredagsbarinn!Singar

Sælir!!!!!

Er ekki kominn tími á almennilegt djamm? E-NÚ!!!!!

Síðasta djamm vetrarins????

Hvenær? - Föstudaginn 10. nóv!

Tími? - 17:30!

Staður? -  fredagsbarinn!


Sælar!!!!!

Slagur!Singar

Steinunn Valdís vs. Magnús Þór Hafsteinsson.

ég kom heim um 17:00 í dag, ég skrapp aðeins í afmæli í gær, e-nú!
Sófinn var góður heima hjá Helga Þór!

Love and Death (1975)Singar

 Boris: "You know, some men are heterosexual and some men are bisexual and some men don't htink about sex at all, you know... they become lawyers."
 
Fáránlega góð mynd, hún er frá 1975 og er hún eftir meistar Woody Allen!
Ég hló alla myndina.
Ekki mynd fyrir Kára eða Gunna!

Iđnađarmenn í blíđu og stríđuSingar

Karl föður minn, Sigmundur og Ragnar bróðir hans ákvörðu að skipta um klósett á heimili mínu, mjög gott. Ég fékk að prufukeyra þetta klósett áðan, postulínið var mjög fínt, ég er sáttur við þessi skipti.

Svartar FjađrirSingar

Nýrómantík, ég datt í ljóðalestur í gær, ástæðan er einföld, þau eru stutt!
Ég var orðinn þreyttur á löngum og leiðinlegum textum og því datt ég í nýrómantíkina, Davíð frá Fagraskógi skemmti mér mikið í gær þangað til ég var  truflaður með hljóðum af neðri hæðinni ((bý í fjölbýlishúsi) þau verða að fara skipta um rúm!) en það stóð sem betur fer ekki lengi, guð sé lof fyrir karlmenn, hvernig hefði þetta farið ef þetta hefðu nú verið tvær konur? sbr. The L - word.

Ríkur!?Singar

Af hverju er ég að lesa um gildissvið 33. gr. laga nr. 7/1936?
Það er eins gott að ég eignist pening í framtíðinni, ekki vil ég leggja það á mig að vera að lesa um gildissvið að grein sem hljómar á þessa leið; ,,Löggerningur, sem ella mundi talinn gildur, getur sá maður, er við honum tók, eigi borið fyrir sig ef það yrði talið óheiðarlegt vegna atvika sem fyrir hendi voru þegar löggerningurinn kom til vitundar hans og ætla má að hann hafi haft vitneskju um."
Ég get alltaf huggað mig við það að það er stutt í næsta föstudag!

Barcelona og Eiđur međ skitinn uppá bakSingar

Fór og horfði á leik Barcelona og Chelsea, vonbrigðin leyna sér ekki, ég er brjálað fúll.
Ég hef haldið með Barcelona síðan 1992 eða frá því ég kom frá Portúgal (fór nefnilega í dagsferð til Sevilla í þeirri ferð) kom heim og ætlaði að byrja halda með Sevilla, sá hins vegar að þeir voru í tíunda sæti en sá þá að Barcelona voru í fyrsta sæti og uppfrá því hef ég haldið með þeim.
Sama gerði ég í ensku með smá hjálp frá pabba, held nefnilega með Man. Utd. og á sama tíma hélt ég bæði með Bayern M. og Milan...
Elska þegar litlir pattar byrja að halda með einhverjum liðum útí heimi og segja síðan að þeir viti eitthvað um knattspyrnu... ég er ennþá sami pattinn og veit enn minna um knattspyrnu.
Maður þroskast aldrei!
Síđa 1 af 7

Innskráningar kubbur

Leit